Áskriftarskilmálar

Áskriftarskilmálar – Mánagaldur

Mánagaldur er mánaðarleg áskrift að galdra boxi frá Moonfire.

Með því að gerast áskrifandi samþykkir þú að greiðsla sé gjaldfærð sjálfkrafa samkvæmt þeirri áskriftarleið sem þú velur við kaup.

Áskriftin endurnýjast sjálfkrafa í hverjum mánuði þar til henni er sagt upp.

Þú getur sagt upp áskriftinni hvenær sem er. Uppsögn tekur gildi fyrir næstu endurnýjun, svo framarlega sem box næsta mánaðar hefur ekki þegar farið í vinnslu eða verið sent.

Ef greiðsla hefur þegar verið gjaldfærð og boxið er komið í vinnslu telst pöntun þess mánaðar staðfest.

Hægt er að stjórna áskriftinni í gegnum viðskiptavinareikning, þar sem meðal annars er hægt að segja upp áskriftinni eða gera breytingar eftir því sem Shopify býður upp á hverju sinni.

Innihald og útfærsla Mánagaldurs getur breyst milli mánaða.  Áskrift endurnýjast mánaðarlega þann 26. fyrir Mánagaldur næsta mánaðar.

Ef þú lendir í vandræðum með áskriftina geturðu haft samband við mig og ég aðstoða eftir bestu getu. hello@moonfire.life

Let your words find me – I’m listening