Moonfire er athvarf fyrir sálina – staður til að hægja á.

Rými þar sem list, helgisiðir og heilun fléttast saman – og bjóða þér að hægja á, anda dýpra og tengjast þér betur.

Frá listaverkum sem tala til sálarinnar, til fallegra hluta fyrir daglega helgisiði og leiddra hugleiðslna sem þú getur notið þegar þér hentar – er hvert einasta verk og hver upplifun sköpuð til að færa meiri nærveru, fegurð og innri ró í þitt líf.

Allt sem þú leitar að hefur alltaf búið innra með þér. Þú ert upphafið.

NÝTT

Ofið landslag – Woven Landscape

Ofið landslag býður þér að bera íslenska náttúru með þér. Fjögur einstök mynstur, sprottin úr íslenskri náttúru

_____

Skoða nánar

Rýmið

Verslunin er opin á völdum dögum. Þú getur séð núverandi opnunartíma í dagatalinu hér fyrir neðan.
Alltaf opið hér á síðunni :)


Bókanir fara fram hér: https://noona.is/moonfire

📍 Moonfire – Þverholt 5, 270 Mosfellsbær (Gengið inn að aftanverðu).

Dagskrá Moonfire

Hér getur þú séð dagskrána framundan. Moonfire er lítið og hlýlegt rými með takmörkuðu plássi, svo ég mæli með að þú tryggir þér pláss tímanlega á þá viðburði sem kalla á þig. 

Skoða dagskrá

11:11 – ÓSKAGRIPUR – Skapandi kvöldstund 

11:11 er táknrænn tími innsæis, nýs upphafs og þess að beina athyglinni að því sem við viljum kalla inn í líf okkar. 🌙

Við byrjum kvöldið á leiddri hugleiðslu og mjúkum tónum þar sem við hægjum á, tengjumst inn á við og mótum okkar eigin ósk eða ásetning.

Síðan sköpum við einstakan Óskagrip úr hvítum mosa, lavender og fallegu skrauti, þar sem lítil, leynileg ósk fær að hvíla.

Við ljúkum stundinni með töfrandi 11:11 athöfn þar sem við tengjum gripinn við ásetninginn og tökum hann með okkur heim.

Innifalið er tveggja klukkustunda upplifun, hugleiðsla, tónar, allur efniviður, 11:11 athöfn og heitt te eða kakó – engin reynsla nauðsynleg!

Bóka pláss

Bókaðu þína stund

Þú getur bókað tíma í heilun og séð hvaða viðburðir eru fram undan, svo sem Yoga Nidra, tónheilanir og aðrar nærandi stundir.

Finnurðu ekki tíma sem hentar?
Eða langar þig að bóka einkastund fyrir saumaklúbbinn, vinahópinn eða annan hóp?

Þá er alltaf velkomið að hafa samband við mig á hello@moonfire.life
Fara á noona