Fara í upplýsingar um vöru
1 af 1

Moonfire.life

SEIÐR – Spell Necklaces Collection - Hálsmen með ásetningi

SEIÐR – Spell Necklaces Collection - Hálsmen með ásetningi

Venjulegt verð 5,990 ISK
Venjulegt verð Söluverð 5,990 ISK
Sala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Tegund
Magn

SEIÐR - Hálsmen með ásetningi

Öll hálsmenin eru samsett úr völdum náttúrusteinum sem hver um sig hefur sína táknrænu merkingu og orku samkvæmt hefð. Hvert hálsmen ber sinn eigin seið – hvort sem það er ást, vernd eða innsæi. Berðu þinn SEIÐR sem litla daglega áminningu um það sem þú velur að beina athyglinni að.

Hálsmenin eru hugsuð sem persónulegir kraftgripir og falleg áminning um það sem þú vilt styrkja og rækta innra með þér. Tilvalin til daglegrar notkunar eða sem merkingarbær gjöf til einhvers sem þér þykir vænt um.

Protection Spell – verndarhálsmen

Fallegt hálsmen með steinum sem hafa verið valdir saman til að styðja við vernd, ró og jarðtengingu. Í hálsmeninu eru tanzanít, ametýst, lepidólít og hematít – steinar sem tengjast innsæi, innri frið, jafnvægi og styrk. Þetta er fallegur gripur fyrir þá sem vilja bera með sér mjúka áminningu um að standa í eigin orku, hlúa að ró sinni og verja það sem skiptir máli.

Love Spell – ástarhálsmen

Fallegt hálsmen með steinum sem hafa verið valdir saman í anda ástar, sjálfsástar, hlýju og ástríðu. Steinar línunnar tengjast hjartanu, mýkt, tilfinningalegu jafnvægi og því að opna sig fyrir kærleika – bæði til sjálfrar sín og annarra. Í hálsmeninu mætast tunglsteinn, rósakvars, ródókrósít, karneól og granat – falleg blanda af mjúkri hjartaorku og hlýrri, líflegri orku.

Moon Spell – tunglseiður í hálsmeni

Fallegt hálsmen með steinum sem hafa verið valdir saman í anda tunglsins, innsæis og innri róar. Í hálsmeninu mætast tunglsteinn, aquamarine og snjókornasvartur obsidian – steinar sem tengjast mýkt, skýrleika, vernd og dýpri tengingu við eigin tilfinningar. Þetta er hálsmen fyrir þær sem vilja bera með sér róandi og seiðandi orku í hversdagsleikanum – mjúka áminningu um að treysta innsæinu, leyfa tilfinningunum að flæða og standa um leið jarðtengdar í eigin orku.

Sjá nánari upplýsingar