Moonfire
Moonfire Botanical Bundle – 3 variants
Moonfire Botanical Bundle – 3 variants
Handbundnar blöndur af jurtum, blómum, ilmandi viði og náttúrusteini – sett saman sem fallegur lítill gripur fyrir heimilið, altarið eða þitt eigið rólega ritúal.
Hver útgáfa hefur sína eigin stemningu og er hugsuð sem lítil áminning um að hægja á, setja ásetning og skapa stund sem er aðeins þín.
Kyrrð & innsæi
Lavender, þurrkuð blóm og ametýst. Mjúk og draumkennd blanda sem hentar vel með hugleiðslu, kvöldrútínu og þegar þú vilt beina athyglinni inn á við.
Hreinsun & jarðtenging
Salvía, Palo Santo og grænn náttúrusteinn. Hráari og jarðbundnari útgáfa fyrir þau augnablik þegar þig langar að endurstilla rýmið, sleppa því gamla og byrja aftur með skýrari ásetning.
Hjarta & mildi
Lavender, rósir, önnur þurrkuð blóm og rósakvars. Hlý og rómantísk blanda sem tengist sjálfsmildi, hjartarými og því að gefa sér aðeins meiri hlýju í hversdeginum.
Hvert búnt er handsett og því eru engin tvö nákvæmlega eins. Litir, lögun blóma og steina geta verið mismunandi – það er hluti af fegurðinni.
Veldu þá blöndu sem kallar á þig.
Ef jurtir eða viður eru brennd skal fjarlægja stein og annað skraut fyrst og nota alltaf eldtraust ílát.
Couldn't load pickup availability
Share
