Ofið landslager verkefni sem umbreytir íslenskri náttúru í textíl. Mynstur sem finnast í mosa, hrauni, skófum og öðrum yfirborðslögum jarðar ferðast úr náttúru → í ljósmynd → í vefnað → á húð.
Verkin skapa nýja og persónulega tengingu við landið — þar sem landslag sem oft hverfur undir fótum okkar verður að efni sem hægt er að snerta, bera og upplifa á nýjan hátt.
Hver vara er hluti af hægu og meðvitaðu ferli – frá hönnun til fullunnar vöru og er því takmarkað magn til hverju sinni.