Tungldraumaseyði
Seyði sem hentar vel á nýju tungli.

Það er kominn tími til að skapa rými fyrir eitthvað nýtt.
Nýtt tungl kemur með nákvæmlega þann möguleika. Við tengjumst þessari orku með litlu draumaseyði – tei sem opnar, róar og nærir.
Þegar við drekkum það, skulum við sjá draum sem við viljum að rætist fyrir okkur og látum þá hugsun fylgja hverjum sopa. Sjáum drauminn sem fræ sem spírar innra með okkur og við treystum því að hann vaxi með hverju tungli sem er framundan.
Tungldraumaseyði
- 1 tsk lavender – róar hugann og opnar fyrir röddina innra með okkur- innsæið.
- 1 tsk kamilla – mýkir hjartað, hjálpar að sleppa streitu.
- 1 tsk sítrónubalm (melissa) – skýrir hugsanir og gefur ferska byrjun.
- ½ tsk rósmarín – fyrir einbeitingu og styrk.
- 1 tsk rósablöð (þurrkuð eða fersk) – opna fyrir hjartaorku og ást.
- 1–2 þunnar appelsínusneiðar – gefur orku og bjartsýni.
- Hunang – eftir smekk.
Undirbúningur
- Settu jurtirnar (nema hunangið) í hitapott eða tekrús.
- Helltu yfir ca. 500 ml af nýsoðnu vatni.
- Láttu liggja í 7–10 mínútur með loki yfir.
- Síaðu, bættu hunangi við ef þú vilt.
Ritúal – Draumagróðursetning
Áður en þú byrjar að drekka, haltu á bollanum með báðum höndum.
Lokaðu augunum og hugsaðu um einn draum eða ásetning sem þú vilt planta undir þessu nýja tungli.
Segðu upphátt eða í hljóði:
„Ég sleppi því sem þjónar mér ekki lengur.
Ég planta draumum mínum.
Ég næri hann/þá með trú, kærleika og þolinmæði.“
Drekktu um hálfan til tvo þriðju af bollanum í hugleiðslu eða þögn.
Með hverjum sopa, sjáðu fyrir þér hvert þú stefnir.
Það sem eftir er af seyðinu, farðu út og helltu örlitlu á mold eða í pottaplöntu – sem táknrænt „vatn“ til að vökva drauminn sem þú hefur plantað.
Innihaldsefnin í seyðinu og eiginleikar þeirra
Lavender (Lavandula angustifolia)
• Róar hugann, mýkir kvíða og spennu.
• Opnar innri raddir og styrkir tengingu við innsæi.
• Ilmurinn gefur tilfinningu af friði og ljósi.
Kamilla (Matricaria chamomilla)
• Slakar á líkama, hjálpar við svefn og meltingu.
• Mýkir hjartað og leysir upp streitu.
• Orkulega tengd barninu innra með okkur – sakleysi og mildi.
Sítrónubalm (Melissa officinalis)
(Mjög erfitt að finna - en ég fann það þó í tepokum í Heilsuhúsinu og notaði það bara)
• Skýrir hugsanir, hjálpar við kvíða og óróleika.
• Gefur ferska byrjun, hreinsar hug og andrúmsloft.
• Ljósberandi jurt sem tengir hug og hjarta.
Rósmarín (Rosmarinus officinalis)
• Eykur einbeitingu og minnisstyrk.
• Gefur styrk, vernd og jarðtengingu.
• Í fornum hefðum notað sem helgiplanta til að hreinsa og til að passa uppá peningana okkar.
Rósablöð (Rose damascena)
• Opið hjarta, ást og fegurð.
• Mýkir sorg og leiðir okkur í átt að kærleika.
• Tengist gyðjunni og mjúku, guðdómlegu kvenorkunni.
Appelsínubörkur/sneiðar
• Gefur gleði, orku og bjartsýni.
• Hjálpar að losa um þungar hugsanir.
• Sólarorkan í berkinum hitar og vekur von.
Hunang (valfrjálst)
• Nærir, mýkir og tengir öll innihaldsefni saman.
• Táknar sælu, gnægð og blessun náttúrunnar.
• Gerir seyðið heilandi og ljúft.
Moonfire
Mánagaldur – The Lunar Witch Box – Júlí 2026
Deila
