Fara í upplýsingar um vöru
1 af 3

Moonfire.life

Gjafabréf í heilun (60 mín)

Gjafabréf í heilun (60 mín)

Venjulegt verð 15.000 ISK
Venjulegt verð Söluverð 15.000 ISK
Sala Uppselt
Skattar innifaldir. Sendingarkostnaður reiknaður við afgreiðslu.
Magn

Gefðu helga stund fyrir þann sem þér þykir vænt um, til að anda dýpra, sleppa takinu og snúa athyglinni inn á við.
Gjafabréfið gildir í heilunarstund hjá Moonfire – hlýja og nærandi upplifun þar sem ró, nærvera og djúp slökun fá að taka pláss.


Falleg gjöf til að hlúa að þeim sem skiptir þig miklu máli.

Gefðu rými fyrir þann sem þér þykir vænt um, til að anda dýpra, sleppa takinu og snúa athyglinni inn á við.
Gjafabréfið gildir í heilunarstund hjá Moonfire – hlýja og nærandi upplifun þar sem ró, nærvera og djúp slökun fá að taka pláss.

Reiki er blíð en öflug orkuheilunarmeðferð sem vinnur með náttúrulega hæfni líkamans til að endurheimta jafnvægi og innri samhljóm. Í þessari 60 mínútna meðferð færðu tækifæri til að hvíla þig og einfaldlega taka á móti, á meðan ég vinn með Reiki orkuna og innsæi til að hreinsa orkustöðvar, róa taugakerfið og kalla fram þitt eigin innra flæði.

Þessi meðferð hentar öllum sem finna fyrir álagi, tilfinningalegum þyngslum, líkamlegri spennu eða einfaldlega sambandsleysi við eigið innra ljós.

Hvernig meðferðin fer fram: Við byrjum á stuttri jarðtenginu og samtali þar sem við setjum ásetning fyrir stundina. Þú slakar algjörlega á (liggur eða situr), umvafin mjúkum koddum og teppum ef þú vilt. Ég vinn með orkuna, annað hvort með höndum á líkama eða aðeins yfir, eftir þínum óskum. Einblínt er á orkustöðvar (chakra) og þau svæði líkamans sem kalla á lækningu Meðferð lýkur með blíðri lokun, slökun og rými fyrir samtal ef þess er óskað

Mögulegur ávinningur Reiki:

Djúp slökun og endurstilling taugakerfis

Tilfinningaleg losun og léttleiki

Hreinsun á orkustíflum

Endurnýjuð tenging við innri frið og ró

Lengd: 60 mínútur
Staðsetning: Í eigin persónu (Þverholt 5, gengið inn bakatil, 270 Mosfellsbær)
Engin reynsla nauðsynleg – þetta er rými til að hvílast og taka á móti.

Sjá nánari upplýsingar