Moonfire
Ofið landslag / Woven Landscape - Bandana hálsklútar (100% silki, 45 × 45 cm)
Ofið landslag / Woven Landscape - Bandana hálsklútar (100% silki, 45 × 45 cm)
Ofið landslag / Woven Landscape Bandana hálsklútar
Hvað gerist þegar landslagið umvefur líkamann?
Ofið landslag er verkefni sem umbreytir íslenskri náttúru í textíl. Mynstur sem finnast í mosa, hrauni, skófum og öðrum yfirborðslögum jarðar ferðast
úr náttúru → í ljósmynd → í vefnað → á húð.
Verkin skapa nýja og persónulega tengingu við landið — þar sem landslag sem oft hverfur undir fótum okkar verður að efni sem hægt er að snerta, bera og upplifa á nýjan hátt.
Efnisvalið er valið með áherslu á gæði, áferð og endingu.
Bandana klútar
45 × 45 cm (18 × 18 in)
100% silk twill
Saumaðar brúnir
Öll efni eru prentuð með hágæða prentun í Danmörku.
Um myndirnar
Myndefnið á rætur í ljósmyndaseríunni Hringir – Circles.
Ljósmyndirnar beina sjónum að smáheimi náttúrunnar — mynstrum, áferðum og litum sem finnast í nánum samskiptum við yfirborð landsins.
Hver mynd fangar augnablik sem oft fer framhjá okkur, en geymir í sér tíma, hreyfingu og kyrrð.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Share